Jæja þá.
Endalaust langt síðan maður hefur bloggað. Ég veit að það eru ennþá einhverjir sem slysast inn á síðuna mína svo ég ákvað að henda inn bloggi sem er "long overdue"!
Margt búið að gerast síðan síðast....
1) Búin að vera á fullu í skólanum, hef varla tíma fyrir neitt nema læra, vinna eins og ég get og vera svo bara heima. Vinir og fjölskylda hafa alveg setið á hakanum. Ég bið ykkur innilega afsökunar á því

2) Skrapp til Edinborgar í byrjun nóvember í æðislega stelpuferð með mömmu, ömmu, Áru og Stefaníu Kolbrúnu. Það var alveg æði

3) Það er búið að leka niðrí íbúðina okkar frá ösnunum sem búa fyrir ofan okkur. Tryggingasmiðirnir voru einmitt hjá okkur núna í morgun og voru að rífa niður 3 efri skápa í eldhúsinu, frekar leiðinlegt. En vonandi fer þetta allt vel. A.m.k erum við alveg tryggð fyrir svona guffa-nágrönnum

4) Skólinn er alveg að verða búinn! Bara 4 tímar eftir og svo tekur bara við harkan sex! 2 ansi langar ritgerðir, 2 próf og svo eitt verkefni. Nú er bara að massa þetta! Klára 17. desember og fer þá beint að vinna fram að jólum. Engin pása fyrir skólafólk sko

hehe
5) Ég er komin í jólaskap og get varla beðið eftir jólunum! Er sko byrjuð að kaupa jólagjafir

Jæja, endilega kíkið á myndasíðuna. Er búin að setja inn 3 ný albúm

Ég skal svo reyna að standa mig betur í blogginu.

Knús