Lífið er yndislegt! Njótum þess!

Sælt veri fólkið :)

09.01.2009 15:09:22 / Habbidu

Jól og áramót

Búin að eiga yndislegt frí með fjölskyldu og vinum :)

Var að skella inn myndum frá jólunum og áramótunum. Endilega kíkið ;)

Knús

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 13:55:23 / Habbidu

Facebook

Ú ú ú.... mín er bara komin með Facebook. Ég er svo ofur svöl 8)

Hehe...jæja, verð að halda áfram að læra.

Bæjó spæjó ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 11:09:24 / Habbidu

"Nýjustu" fréttir

Jæja þá.
Endalaust langt síðan maður hefur bloggað. Ég veit að það eru ennþá einhverjir sem slysast inn á síðuna mína svo ég ákvað að henda inn bloggi sem er "long overdue"!

Margt búið að gerast síðan síðast....

1) Búin að vera á fullu í skólanum, hef varla tíma fyrir neitt nema læra, vinna eins og ég get og vera svo bara heima. Vinir og fjölskylda hafa alveg setið á hakanum. Ég bið ykkur innilega afsökunar á því :^)

2) Skrapp til Edinborgar í byrjun nóvember í æðislega stelpuferð með mömmu, ömmu, Áru og Stefaníu Kolbrúnu. Það var alveg æði :)

3) Það er búið að leka niðrí íbúðina okkar frá ösnunum sem búa fyrir ofan okkur. Tryggingasmiðirnir voru einmitt hjá okkur núna í morgun og voru að rífa niður 3 efri skápa í eldhúsinu, frekar leiðinlegt. En vonandi fer þetta allt vel. A.m.k erum við alveg tryggð fyrir svona guffa-nágrönnum ;)

4) Skólinn er alveg að verða búinn! Bara 4 tímar eftir og svo tekur bara við harkan sex! 2 ansi langar ritgerðir, 2 próf og svo eitt verkefni. Nú er bara að massa þetta! Klára 17. desember og fer þá beint að vinna fram að jólum. Engin pása fyrir skólafólk sko ;) hehe

5) Ég er komin í jólaskap og get varla beðið eftir jólunum! Er sko byrjuð að kaupa jólagjafir :D

Jæja, endilega kíkið á myndasíðuna. Er búin að setja inn 3 ný albúm :D

Ég skal svo reyna að standa mig betur í blogginu.

http://farm4.static.flickr.com/3068/3058850574_c3a3c1e012.jpg?v=0

Knús

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 18:35:18 / Habbidu

Ussussuss...

Já, svei! Það er bara búið að líða heilt sumar og minn hefur bara ekkert bloggað!
Jæja, ég verð að viðurkenna að ég hef ekki þennan brennandi áhuga á blogginu eins og ég hafði alltaf en já....ég ætlaði a.m.k. að koma með eina ánægjulega tilkynningu.

Ég er búin að henda inn 7 nýjum myndamöppum á myndasíðuna mína (sem er líka búin að sitja á hakanum 8| ). En já, ef þið hafið áhuga á að sjá hvað ég er búin að vera að bralla síðan í apríl, í smá máli og aðallega myndum, endilega kíkið þá á myndasíðuna ;)

Knús

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 11:49:17 / Habbidu

Madonna

Já, þessi söngkona er sko alveg mega! Alltaf að breyta um ímynd þó að hún verði hálfrar aldar gömul á þessu ári. Ekki amalegt það ;) svo er hún náttlega í killer formi og blæs varla úr nös þó hún haldi 2 tíma show með klikkuðum dansatriðum og hoppum og öllu tilheyrandi. Vá hvað ég væri til í að fara á tónleika með henni! 8|

Ég fíla nýja diskinn hennar. Ég er alveg húkked á einu lagi....takturinn í því bara dáleiðir mig....Spanish Lessons.....kannski kjánalegt lag en ég er nú einu sinni kjánaprik svo þið getið ekki dæmt mig :haha:


Ást mín á Madonnu er hins vegar ekki ný af nálinni....þetta byrjaði held ég allt með þessu lagi.....

http://www.youtube.com/watch?v=uHZDjO_DlSI

Ah, yndislegt! :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 23:08:45 / Habbidu

Jesssss!

Já, loksins upp úr forkeppninni!!!! :D :D :D
Ég vissi að þau gætu það....held það hafi líka verið þeim til framdráttar að vera fyrst á svið....ekki það að lagið sé ekki gott sko, það er nebblega mjög flott ;) þau stóðu sig með prýði!

Vá! Þetta verður alveg klikkað á laugardaginn!!! Ekki það að ég sé alltaf spennt fyrir Eurovision og þá sérstaklega lokakvöldinu en þetta verður extra skemmtilegt! :haha: svo verður líka ýmislegt annað skemmtilegt t.d. Kalomira frá Grikklandi, Ani Lorak frá Úkraínu, Sirusho frá Armeniu, Jelena frá Serbíu, Charlotte (plastkonan frá Svíþjóð sem allir þekkja) og svo síðast en ekki síst hann Sébastien frá Frakklandi (sem minnir mig klárlega bara á Jens ;) hehe)

Já, þetta verður heldur betur skemmtilegt! :D

Kannski maður fari á Nasa líka....hver veit?

Regína Ósk og Friðrik Ómar eiga lag dagsins 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 11:21:31 / Habbidu

Prófin búin! :D

Jess! Loksins eru prófin búin :D
Þetta er náttlega bara snilld. Ótrúlegt eiginlega hvað þetta leið eitthvað fljótt...

Nú er bara vinnan tekin strax við...síðasta prófið var á þriðjudaginn og ég fór beint að vinna í gær. Verð í La Senza í sumar eins og síðustu sumur...voða næs bara ;)

Svo eru spennandi tímar framundan....verið að breyta búðinni og gera hana alveg klikkað flotta!!! :haha: hlakka svo til að fara að vinna í alveg splunkunýrri búð!

Um helgina ætlum ég og Atli samt að slappa smá af og skella okkur í sumarbústað í Minni Borgum í Grímsnesinu....það verður yndislegt að slaka á og liggja í heitum potti og grilla og.......

Lag dagsins: Beat Goes On ~ Madonna & Kanye West (sumarlegur tónn :D)

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 11:15:44 / Habbidu

Próf...

Hm, prófin að byrja á morgun....
Þetta leggst reyndar bara ágætlega í mig.....

Mesta vesenið verður Ensk málsaga og Bandarísk Menningarsaga...mjög yfirgripsmikil fög!

Jæja, best að halda áfram að læra fyrir Enska Málfræði....þetta hljómar kannski kreisí en ég hlakka eiginlega bara til að fara í það próf...er ég rugluð?!? 8|

Lag dagsins: Ég er í svaka Eurovision stuðin núna (örugglega af því það eru próf ;) hehe) Charlotte Perrelli-Hero (mjög líklegt til sigurs...)

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 21:53:14 / Habbidu

Díses kræst!!!

Ég bara trúi þessu ekki:!: Þetta er nú meiri viðbjóðurinn!

http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/04/15/atta_ara_stulku_veittur_logskilnadur/

Hvað er að í þessum heimi? Að þetta skuli ekki vera bannað með lögum er alveg ótrúlegt! Svo hafa þessir 2 menn greinilega enga siðferðiskennd....engan mun á réttu og röngu....heilbrigt fólk gerir bara ekki svona 8| maður verður bara reiður :evil:

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 12:23:49 / Habbidu

Umdeilanlegt...

Skattaskýrsla og ritgerð í English Composition II.....gæti það verið skemmtilegra?!? :$

Uh! A.m.k þá get ég hlustað á gott lag á meðan...

Lag vikunnar: White Room ~ Cream (ú, hlakka til að fara á Eric Clapton í ágúst :d)

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 16:02:02 / Habbidu

Árshátíð :D

Í gær var árshátíðin hjá La Senza og öllum fyrirtækjunum í eigu Sjafnar og Sigga ;)
Eins og undanfarin ár þá voru herlegheitin haldin í Glersalnum í Kópavogi. Þetta er náttlega æðislegur salur og skemmtinefndin var búin að skreyta með einkar sumarlegum skreytingum 8)

Þetta var með flottara móti í ár: Veislustjórinn var Sigmundur Ernir THE fréttamaðurinn á Stöð 2 (hann reytti alveg af sér brandarana og kom skemmtilega á óvart), óvæntir glaðningar voru dregnir út og loks glæsilegur ferðavinningur - flug fyrir 2 til áfangastaðar að eigin vali innan Evrópu (I totally wanted that! 8| ) og loks var það páskaegg frá Nóa Siríus nr 9. Svo eftir alveg himneskan matinn kom DJ og tældi fólk útá dansgólfið með villtum diskótónum.

Þegar klukkan var orðin hálf 1 kom Hummerlimma og náði í þá sem ætluðu í bæinn og skutluðu okkur á Apótekið þar sem við vorum á gestalista. Þetta var alveg snilld.

Alveg æðislegt kvöld og ég og Atli skemmtum okkur svo vel :D

Lag dagsins: Homecoming  ~ Kanye West og Chris Martin

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 19:56:03 / Habbidu

Á leiðinni í skólann...

Ég bara get ekki hætt að hlusta á nýjasta diskinn hennar Britney Spears! Hann er alveg snilld! (kannski er ég bara svona mikil gelgja, ég veit ekki :lol: ) Amk þá spila ég hann þegar ég er á leiðinni í skólann og þegar ég fer vestur í bæ og þegar ég er komin heim og þegar ég er að læra....þið fattið þetta ;)

Lag vikunnar: Klárlega Get Naked (I Got A Plan) með Britney :D 

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 15:11:11 / Habbidu

Ég fíla

...að fara í sund eins oft og ég get
...að liggja í leti heima (og forðast að læra)
...að eiga notarlega stund með Atla
...að vinna í La Senza
...að dilla mér við "Get Naked (I Got A Plan)" með Britney með stelpunum í vinnunni ;)
...að hitta Sirrý á laugardögum og setjast á Kaffitár og spjalla :D
...að borða góða matinn sem ég og Atli eldum
...að koma heim eftir vinnu og Atli er búinn að þrífa allt hátt og lágt :D
...að fara út að borða og svo í bíó á góða mynd
...að hlusta á lagið "I Need You" með Aliciu Keys á fullu blasti!

Ég fíla hins vegar ekki
...að fá ljóta bólu rétt fyrir fermingu og árshátíð :(
...að helgin hreinlega fljúgi frá manni!
...að eiga ekki pening
...að vera með of háan Visareikning
...að þurfa að fara að læra undir leiðinlegt próf í History of English :frown:

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 21:25:56 / Habbidu

Óskarinn

Damn! Já, ég segi bara damn! Javier Bardem átti svo sannarlega Óskarinn skilið fyrir leik sinn í No Country For Old Men! Og besta myndin líka....ég er bara mjög ánægð með þetta allt saman ;)

Svo eru það greinilega nokkrar aðrar myndir sem maður verður að sjá: There Will Be Blood, La Vie En Rose, Michael Clayton og Juno. Klárlega myndir á Must See listanum :D

En aftur að Javier Bardem. Hann átti það skilið. Svo var hann náttlega með eindæmum hot á Rauða dreglinum.....smekklegur og alveg devilishly handsome í Prada 8) já, ég segi bara grrrrr ;)

Javier Bardem

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 21:13:15 / Habbidu

Nýtt útlit kallar á nýja færslu

Já, eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir er komið nýtt útlit á blogcentral síðurnar. Það var svo sem kominn tími til að fá smá andlitslyftingu fyrir kerfið enda orðið doldið gamalt (amk í internet-árum ) ;)

Jæja, annars er svo sem ekki mikið að frétta. Verkefnavikan í skólanum var að klárast og skólinn byrjaður aftur af hörku. Yfirvofandi 1 próf og 2 ritgerðir sem ég nenni ómögulega að gera! Any takers?!? :haha:

Það er voða kósí hérna í Naustabryggjunni hjá okkur Atla. Loksins er skrifstofan komin í notkun :!: Finally! Þetta tók bara eina góða helgi fyrir mig til að setjast niður og flokka þessa gommu af dóti sem ég á eftir að Atli var búinn að setja upp hillurnar.....ég komst sko sannarlega að því að ég er haldin alveg svaðalegri söfnunaráráttu.....þetta er örugglega ólæknandi andskoti ;)

Ég og Atli horfðum á Laugardagslögin um helgina....ég verð að segja að ég er fanta ánægð með útkomuna enda kaus ég Regínu og Friðrik Ómar. Klassa tónlistarmenn þar á ferð og ég var guðslifandi fegin að Ho Ho Ho fór ekki út....vissulega fyndið atriði og alveg hægt að dilla sér við en ég hefði ekki getað haldið andliti ef lagið hefði farið út til Serbíu fyrir okkar hönd. Silvía var alveg nóg þarna um árið. Verðum að leyfa fólki að pústa aðeins á milli spaugatriða 8)

Nenni ekki meiru í bili....þarf að lesa í Amerískum bókmenntum og svo enska málfræði...

Lag vikunnar: The Wiggle Wiggle Song ~ Haffi Haff

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  69  Alls: 70537
Leitarbox